Beint í efnið

Persónuvernd

Engine ehf., kt. 621021-1680, rekur Blöðin, vefinn blodin.is og app fyrir iOS/iPadOS og Android, og ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem þar fer fram samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (ESB) 2016/679. Við söfnum eins litlu og hægt er: þú þarft ekki að skrá þig inn og við notum engar auglýsingar eða rakningu.

Vafrakökur og geymsla í vafranum

Blöðin nota eina vafraköku. Hún geymir tungumálið sem þú velur, íslensku eða ensku, í eitt ár frá síðustu heimsókn. Í vafranum sjálfum geymum við líka stillingar, t.d. hvort þú valdir ljóst eða dökkt útlit og hvort þú hafir séð ábendinguna um appið. Þessar upplýsingar eru bara á tækinu þínu og eru ekki notaðar til að þekkja þig.

Vefmæling

Til að sjá hvaða blöð eru lesin og hvernig Blöðin nýtast teljum við hvaða tölublöð eru opnuð, hvaða síður eru lesnar og hve lengi, á hvaða tengla í síðunum er smellt og að hverju er leitað. Þetta notar ekki vafrakökur, safnar ekki persónugreinanlegum upplýsingum og fylgir þér ekki á milli vefja: til að telja gesti fær hver dagur nýjan tilviljanakenndan lykil sem er eytt þegar dagurinn er liðinn. Gögnin eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins og eingöngu skoðuð sem samantektir; útgefandi hvers blaðs sér tölurnar fyrir sitt blað.

Leit

Þegar þú leitar í blöðunum er leitarorðið sent til Edition Engine, kerfisins sem geymir blöðin, til að finna niðurstöður. Leitarorð eru ekki vistuð með upplýsingum um þig, en þau geta komið fram í þjónustuskrám.

Hýsing og þjónustuskrár

Blöðin eru hýst hjá Cloudflare, sem vinnur gögnin fyrir okkar hönd. Eins og á flestum vefjum verða til þjónustuskrár við hverja heimsókn, með t.d. IP-tölu, tíma, slóð og gerð vafra. Við notum þær eingöngu til að halda þjónustunni gangandi og finna villur, og þeim er eytt sjálfkrafa eftir nokkra daga. Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum okkar af því að reka öruggan og virkan vef (f-liður 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar, sbr. lög nr. 90/2018).

Appið

Appið sendir sömu nafnlausu lestrartölur og vefurinn, án auðkennis fyrir þig eða tækið þitt; tölur um blöð sem eru lesin án nettengingar bíða á tækinu þar til hægt er að senda þær. Ef þú kveikir á tilkynningum geymum við tilkynningalykil tækisins, sem Apple eða Google gefur út, ásamt tungumáli appsins og hvaða blöðum þú fylgist með, til að geta látið þig vita þegar nýtt tölublað kemur út. Lykillinn er ekki tengdur nafni, netfangi eða lestri þínum og honum er eytt þegar þú slekkur á tilkynningum eða eyðir appinu. Tilkynningarnar fara um þjónustur Apple og Google. Stillingar og smámyndir af blöðum sem þú hefur opnað eru geymdar á tækinu sjálfu og hverfa ef þú eyðir appinu.

Hverjir fá upplýsingarnar

Við seljum ekki persónuupplýsingar og deilum þeim ekki með öðrum. Einu aðilarnir sem vinna þær eru þjónustuaðilar sem reka Blöðin fyrir okkur, eins og Cloudflare, og þeir mega ekki nota þær í öðrum tilgangi. Yfirvöld fá upplýsingar aðeins ef lög skylda okkur til að afhenda þær.

Öryggi

Öll samskipti við Blöðin, á vefnum og í appinu, eru dulkóðuð. Aðgangur að þjónustuskrám og vefmælingum er takmarkaður við þá sem þurfa hann til að reka Blöðin.

Útgefendur og aðrir vefir

Ef þú ferð yfir á aðra vefi, t.d. vef útgefanda, App Store eða Google Play, gilda persónuverndarstefnur þeirra.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að vita hvaða persónuupplýsingar við vinnum um þig og fá afrit af þeim, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, fá þær afhentar á tölvutæku formi, fá vinnsluna takmarkaða og að andmæla henni. Hafðu samband við okkur ef þú vilt nýta þessi réttindi. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.

Rekstraraðili

Engine ehf.
kt. 621021-1680 · VSK-nr. 160260
Pósthólf 5060, 125 Reykjavík
ngn.is

Síðast uppfært 4. október 2026