Beint í efnið

Skilmálar

Þessir skilmálar gilda um notkun á Blöðin, vefnum blodin.is og appi fyrir iOS/iPadOS og Android, sem Engine ehf. rekur. Með því að nota Blöðin samþykkir þú þá. Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna okkar.

Þjónustan

Blöðin birta fríblöð og tímarit sem íslenskir útgefendur gefa út og gera aðgengileg. Þjónustan er ókeypis og ekki þarf að skrá sig.

Efni blaðanna

Höfundarréttur og annar réttur að blöðunum og efni þeirra er hjá útgefendum þeirra og höfundum. Útgefendur bera ábyrgð á efninu og Blöðin birta það óbreytt.

Hugverkaréttindi

Útlit, merki, texti og hugbúnaður vefsins og appsins eru eign Engine ehf. og njóta verndar höfundarréttar- og vörumerkjalaga. Óheimilt er að afrita þau eða nota án leyfis.

Notkun

Þér er frjálst að lesa blöðin, leita í þeim og deila tenglum á þau. Óheimilt er að afrita blöðin kerfisbundið, sækja efni sjálfvirkt í stórum stíl eða endurbirta það án leyfis viðkomandi útgefanda. Óheimilt er einnig að trufla eða skerða virkni þjónustunnar, t.d. með óeðlilegu álagi, að reyna að komast fram hjá öryggisráðstöfunum hennar eða að nota hana í ólögmætum tilgangi.

Brot á skilmálum

Við getum lokað á umferð sem brýtur gegn skilmálunum, t.d. sjálfvirka söfnun efnis, án fyrirvara. Vakni grunur um lögbrot áskiljum við okkur rétt til að tilkynna það til yfirvalda.

Ábyrgð

Við gerum okkar besta til að Blöðin séu aðgengileg og rétt, en getum ekki ábyrgst að þjónustan sé alltaf tiltæk eða villulaus; hún getur rofnað, t.d. vegna bilana eða uppfærslna. Engine ehf. ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun þjónustunnar nema skylt sé samkvæmt lögum, og í engu tilviki á óbeinu eða afleiddu tjóni, svo sem glötuðum hagnaði. Við berum ekki ábyrgð á efni annarra vefja sem vísað er á.

Óviðráðanleg atvik

Engine ehf. ber ekki ábyrgð á því ef þjónustan bregst vegna atvika sem félagið ræður ekki við, svo sem náttúruhamfara, verkfalla, aðgerða stjórnvalda, orkuskorts eða bilana hjá fjarskipta- og hýsingaraðilum.

Breytingar

Við getum breytt þessum skilmálum. Nýjasta útgáfan er alltaf á þessari síðu.

Lög og varnarþing

Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Rekstraraðili

Engine ehf.
kt. 621021-1680 · VSK-nr. 160260
Pósthólf 5060, 125 Reykjavík
ngn.is

Síðast uppfært 30. september 2026